um okkur

Kjarafélag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Afhverju að ganga í KVH

Markmið KVH eru fyrst og fremst

Hagsmunagæsla viðskipta- og hagfræðinga

Menntun sé metin til launa þegar kemur að kjarasamningum.

Persónuleg ráðgjöf

Í kjara- og réttindamálum, svo sem við gerð ráðningasamninga og við undirbúning launaviðtals.

Fagleg aðstoð

Kjarasérfræðingar félagsins við túlkun á kjarasamningum eða við yfirferð á launaseðlum. Félagið veitir einnig félagsfólki lögfræðiaðstoð sé tilefni til.

Hvað getur KVH gert fyrir þig?

Félagsmenn KVH geta meðal annars

FAQs

Algengar Spurningar

Verkalýðsfélag er samtök sem verja hagsmuni launþega. Með því að ganga í
verkalýðsfélag færðu sterkari rödd þegar kemur að því að semja um launakjör,
vinnutíma, vinnuskilyrði og tryggir þér sanngjarna meðferð á vinnustaðnum.
Verkalýðsfélög veita stuðning og vernd ef vandamál koma upp á
vinnustaðnum.

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga  sér um að gera kjarasamninga  fyrir hönd sinna félagsmanna og fer með hagsmuna- og réttindavörslu fyrir þeirra hönd.  Í því felst meðal annars að semja við fjármálaráðherra (f.h. ríkissjóðs),  Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins um aðalkjarasamninga, auk kjarasamninga við fáein fyrirtæki sem standa utan við þessa viðsemjendur. Þá gerir KVH svonefnda stofnanasamninga fyrir félagsmenn á ríkisstofnunum, sem eru nánari útfærsla kjarasamninga á þeim vinnustöðum.

Á almenna vinnumarkaðinum gera félagsmenn einstaklingsbundna ráðningarsamninga um kjör sín, og aðstoðar KVH félagsmenn við það ef óskað er, en að öðru leyti fara réttindi og kjör þeirra eftir kjarasamningi KVH við SA. Í kjarasamningum, lögum og reglugerðum eru fjölmörg atriði sem  skipta félagsmenn máli, þótt þau snúist ekki öll beinlínis um kaupliði. Þar má nefna rétt til launa í veikindum, orlofsrétt, réttindi er snerta starfs- og endurmenntun,  aðbúnað og hollustuhætti á vinnustað, tryggingar, fæðingarorlof og ýmsa sjóði sem hægt er að sækja styrki í.

Félagsmenn geta jafnframt leitað til KVH ef upp koma alvarleg samskiptavandamál á vinnustöðum, sem ekki hefur tekist að leysa. Þar geta verið um að ræða mál sem snerta áreitni eða einelti, fyrirhugðaða áminningu, starfsöryggi og fleira. Það er markmið KVH að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og  hagsmunagæslu á hverjum tíma.  Aðild KVH að Bandalagi háskólamanna (BHM) er mikilvægur hluti af því að þessu markmiði verði náð

Félagsaðild er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi. Fullgildir félagsmenn geta þeir orðið sem greiða félagsgjöld og hafa lokið viðurkenndu prófi í viðskiptafræði eða hagfræði eða hafa lokið annarri námsgráðu á háskólastigi sem inniheldur að lágmarki 120 ECTS einingar af viðskipta- og hagfræðigreinum. Einnig geta þeir sem lokið hafa annarri háskólagráðu og eru í starfi þar sem viðskiptafræði- eða hagfræðimenntun nýtist fengið aðild að félaginu

Bæði viðskiptafræðingar og hagfræðingar sem starfa sem slíkir, þ.e. nýta þekkingu sína og menntun í viðkomandi starfi, og eru launamenn eða sjálfstætt starfandi, geta átt félagsaðild að KVH.

Til að ganga í félagið þarftu að fylla út aðildarumsókn, sem oft má gera hérna efst á heimasíðu félagsins eða með því að ýta á hnappinn hér að neðan.

Sækja um aðild

Sækja um námsaðild

Félagsgjöld KVH eru í grunninn 0,6% af launum. Að auki er innheimt lítið gjald í sjóði félagsins sem er mismunandi eftir þeim vinnumarkaði sem aðili starfar  og má sjá nánar hér “redirect to mótframlag í sjóði”.

Þessi gjöld fara í starfsemi félagsins, svo sem samningaviðræður, lagalegan stuðning og skipulagsmál.

Félagsgjöld KVH eru í grunninn 0,6% af launum. Að auki er innheimt lítið gjald í sjóði félagsins sem er mismunandi eftir þeim vinnumarkaði sem aðili starfar  og má sjá nánar hér “redirect to mótframlag í sjóði”.

Þessi gjöld fara í starfsemi félagsins, svo sem samningaviðræður, lagalegan stuðning og skipulagsmál.

Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að sex mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar eða töku barns í varanlegt fóstur. Foreldri er heimilt að framselja sex vikur af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins. Heildarréttur foreldra er því 12 mánuðir.

Lestu nánar um réttindi í fæðingarorlofi

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum á vinnustað, svo sem ósanngjarnri meðferð eða einelti, hafðu strax samband við fulltrúa félagsins. Við veitum leiðsögn, miðlun eða jafnvel lagalega aðstoð til að leysa vandamál.

Þú getur tekið þátt með því að mæta á félagsfundi, ganga í nefndir, boða þig fram til verkefna eða bjóða þig fram til trúnaðarstarfa innan félagsins. Virk þátttaka hjálpar til við að tryggja að rödd þín og félaga þinna heyrist.

Ákvarðanir félagsins svo sem upphæð félagsgjalda, kosning í stjórn eða samþykkt ársreikinga eru teknar á aðalfundi KVH. Þess utan fer stjórn félagsins með ákvörðunartöku. Allir félagar eru hvattir til að mæta á ársfund og taka þátt í starfsemi félagsins.

Verkfall á sér stað þegar félagsmenn ákveða sameiginlega að hætta vinnu til að mótmæla ósanngjörnum vinnubrögðum eða til að knýja fram kjarasamning. Verkföll eru síðasta úrræði og félagsmenn kjósa um aðgerðir.

Félagið veitir aðgang að lagalegri ráðgjöf og stuðningi vegna vinnustaðarmála, svo sem ólögmætrar uppsagnar, eineltis eða brota á ráðningarsamningi þínum. Hafðu samband við fulltrúa félagsins fyrir aðstoð.

Við hvetjum félagsfólk til að skrá sig á póstlista félagsins og fylgjast með fréttauppfærslum á heimasíðu félagsins. Félagið svarar öllum fyrirspurnum sem berast á [email protected]