Aðalfundur KVH 2022

Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga var haldinn 23. mars sl. Jóngeir Hlinason var kosinn fundarstjóri og Björn Bjarnason var kosinn ritari. Dagskrá fundarins var: Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári Reikningar félagsins Tillögur félagsstjórnar Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf Lagabreytingar Ákvörðun félagsgjalda Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins Önnur mál Aðalfundur samþykkti […]
Nýr framkvæmdastjóri KVH

Oddgeir Ágúst Ottesen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH). Hann er með doktorsgráðu í hagfræði frá University of California þar sem sérsvið hans var fjármálahagfræði og stærðfræðigreining. Undanfarin átta ár hefur hann rekið ráðgjafafyrirtækið Integra og veitt þar ráðgjöf varðandi líkanagerð og áhættu- og lausafjárstýringu. Einnig veitti hann þar ráðgjöf um lífeyrismál […]
Viðhorfskönnun BHM – áminning

Um þessar mundir er BHM að keyra viðhorfskönnun meðal félagsmanna aðildarfélaga. Könnunin er mikilvægur liður í undirbúningi fyrir kjarasamninga. Við hvetjum ykkur eindregið til að taka þátt, það tekur aðeins nokkrar mínútur.
Aðalfundur KVH

Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn miðvikudaginn 23. mars 2022, kl. 12:00 – 13:30, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 4. hæð. Dagskrá: Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári Reikningar félagsins Skýrslur og tillögur nefnda Tillögur félagsstjórnar Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf Lagabreytingar Ákvörðun félagsgjalda Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins […]
Fjarvinna og samskipti – fyrirlestur

Fjarvinnu fylgja áskoranir, BHM býður því upp á fyrirlestur með Ingrid Kuhlman, sálfræðingi, um hvernig á að takast á við þær. Hér er einnig hægt að skoða næstu viðburði á fræðsludagskrá BHM Smelltu hér til að skrá þig á fyrirlesturinn Fjarvinna og samskipti Fyrirlestur með Ingrid Kuhlman á Teams þriðjudaginn 15. mars kl. 11:00-12:00 […]
Orlofsblaðið er komið út

Orlofsblaðið, árlegt kynningar- og upplýsingarit Orlofssjóðs BHM, er komið út. Þar eru kynntir þeir orlofskostir sem sjóðfélögum standa til boða. Orlofsblaðið 2022 er hægt að lesa hér. Í sumar mun orlofssjóðurinn bjóða upp á 61 hús eða íbúðir innanlands í öllum landshlutum og um 670 leiguvikur. Sjóðfélagar sem hug hafa á að nýta orlofskosti að […]
Næstu viðburðir á Fræðsludagskrá BHM

Við hvetjum ykkur til að líta á næstu viðburði á Fræðsludagskrá BHM. Meðvirkni á vinnustöðum Sigríður Indriðadóttir, eigandi og þjálfari hjá SAGA Competence fer yfir hvernig meðvirkni birtist á vinnustaðnum og með hvaða hætti meðvirknimynstur geta skapast. Einnig er skoðað hvaða áhrif meðvirkni hefur á starfsfólk, vinnustaðarmenninguna og árangur í víðum skilningi og svo verða […]
Námsstefna Ríkissáttasemjara

Fulltrúar Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga sitja núna námsráðstefnu Ríkissáttasemjara til að undirbúa komandi kjarasamningsviðræður. Á námsstefnunni er m.a. farið yfir hvernig ákjósanlegast er að haga kjaraviðræðum, efnahagslegt samhengi kjarasamninga og leikreglur á vinnumarkaði. Vandaðar undirbúningur kjarasamningsgerðar er til þess fallinn að auka árangur í kjaraviðræðum.
Framboð í stjórn

Stjórn Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga vekur athygli á að frestur til að bjóða sig fram til setu í stjórn rennur út á miðnætti. Áhugasamir geta boðið sig fram í embætti ritara, meðstjórnanda eða í varastjórn með því að senda póst á netfangið [email protected]
Að loknu stefnumótunarþingi BHM

Stefnumótunarþing BHM var haldið föstudaginn 25. febrúar. Fulltrúar Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) tóku virkan þátt í starfi þingsins og við að móta nýja stefnu bandalagsins í þeim málaflokkum sem til umræðu voru. Meðal annars var lífeyrisstefna BHM uppfærð en sú vinna byggði á starfi vinnuhóps á vegum bandalagsins sem fulltrúi KVH hefur leitt síðustu […]