Þær breytingar hafa orðið á stjórn BHM að Guðlaug Kristjánsdóttir lét af starfi formanns eftir að hafa gegnt því í sex og hálft ár, eins og komið hefur fram. Við tók Páll Halldórsson, sem áður var varaformaður bandalagsins. Formannaráð BHM kaus síðan Guðfinnu Höllu Þorvaldsdóttur, varaformann í stað Páls. Inn í stjórn BHM kemur, Birgir Guðjónsson, formaður KVH, en hann var áður fyrsti varamaður. Þannig verður skipan mála fram að næsta aðalfundi BHM næstkomandi vor.
Stjórn BHM skipa nú: Páll Halldórsson, formaður, Guðfinna Halla Þorvaldsdóttir, varaformaður, Bragi Skúlason, ritari, Michael Dal, gjaldkeri, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, Steinunn Bergmann og Birgir Guðjónsson. Varamaður er Hanna Dóra Másdóttir.