KVH hefur nú gert nýtt samkomulag við Orkuveitu Reykjavíkur um breytingu og framlengingu á kjarasamningi aðila. Samkomulagið var samþykkt með yfir 90% greiddra atkvæða á fundi félagsmanna KVH sem starfa hjá OR. Gildistími þessa nýja samkomulags er til 28. febrúar 2015.