Niðurstaða atkvæðagreiðslu vegna samkomulags um breytingar og framlengingu á kjarasamning KVH við RÚV

Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga við Ríkisútvarpið ohf. (RÚV) var undirritaður miðvikudaginn 30. september 2020. Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram í kjölfarið þar sem félagsmenn samþykktu breytingarnar með meirihluta atkvæða. Gildandi kjarasamningur framlengist til 1. nóvember 2022 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í samkomulaginu felst.