Samningur KVH við SFV samþykktur

Nýgert samkomulag um breytingu og framlengingu kjarasamnings KVH og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), var kynnt viðkomandi félagsmönnum í dag og greidd atkvæði um samninginn. Samningurinn var samþykktur samhljóða. Hann gildir til 31. mars 2019.
Samningaviðræður við sveitarfélögin og RVK

Nú standa yfir kjarasamningaviðræður KVH við annars vegar Samband ísl. sveitarfélaga og hins vegar Reykjavíkurborg. Fundað var í síðustu viku og fundum er haldið áfram í þessari viku. Stefnt er að því að ná samningum fyrir vikulok.