Kjaraviðræður KVH við ríkið

Í júlí mánuði gerðu KVH og Samninganefnd ríkisins (SNR) samkomulag um stutta frestun samningaviðræðna yfir hásumarið meðan deila annarra 18 aðildarfélaga BHM og hjúkrunarfræðinga var til úrskurðar hjá Gerðardómi, skv. lagasetningu þar um, og sömuleiðis málarekstur fyrir Hæstarétti. Gerðardómur birti úrskurð sinn fyrir fáeinum dögum og í þessari viku héldu viðræður KVH og SNR áfram. […]