Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Sjóðfélagar í Styrktarsjóði eða Sjúkrasjóði BHM athugið!
Umsóknir og gögn sem miðast við almanaksárið 2014 þurfa að berast í síðasta lagi 9. desember næstkomandi. Umsóknum og fylgigögnum er skilað í gegnum Mínar síður BHM. Sama gildir um gögn vegna umsókna sem þegar hafa borist.
Styrkumsóknir eru afgreiddar í hverjum mánuði. Umsóknir og fullnægjandi gögn sem berast í síðasta lagi 9. eru greiddar út 24.-26. dag sama mánaðar.
Nálgast má úthlutunarreglur á vefsvæði sjóðanna.
Nánari upplýsingar gefa fulltrúar sjóðanna:
Ingunn Þorsteinsdóttir vegna Styrktarsjóðs (opinberir starfsmenn): Sími 595-5111
Gissur Kolbeinsson vegna Sjúkrasjóðs (starfsmenn á almennum markaði): Sími 595-5120
Kjarasamningur samþykktur við SFV
KVH hefur nú gert nýtt samkomulag við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) um breytingu og framlengingu á kjarasamningi aðila. Samkomulagið var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á fundi félagsmanna sem undir samninginn heyra. Gildistími þessa nýja samkomulags er til 28. febrúar 2015.
Eru veikindadagar vinnudagar?
Morgunverðarfundur BHM um veikindavinnu starfsmanna. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Staður: Hilton Reykjavík Nordica
Dagsetning: 18. nóvember kl.9.00-10.30.
Til félagsmanna á Akureyri og nágrenni
Að gefnu tilefni minnum við á að BHM stendur fyrir fræðslu og að þessu sinni eru nokkur sæti laus á námskeið um þjónandi forystu – hugmyndafræði og hagnýting, sem er haldið á Akureyri 2. desember n.k.
- Staðsetning: AKUREYRI – Lionssalnum að Skipagötu 14, sama húsi og veitingarstaðurinn Strikið
- Tími: kl. 09:00 – 12:00
- Skráning hér
Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast með heimasíðu félagsins, www.kjarafelagvh.is, jafnt sem láta vita ef breytingar verða á netföngum.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur