Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Aðalfundur BHM
Aðalfundur BHM var haldinn 22. apríl s.l. Nýr formaður bandalagsins var kosinn og er það Þórunn Sveinbjarnardóttir. Fulltrúar KVH í stjórnum, ráðum og nefndum BHM eru eftirtaldir: Birgir Guðjónsson (varamaður í stjórn BHM); Gunnar Gunnarsson (skoðunarmaður reikninga BHM og varaformaður Orlofssjóðs BHM); Hallur Páll Jónsson (í Kjara- og réttindanefnd BHM); Ragnheiður Ragnarsdóttir (í Þjónustu- og aðbúnaðarnefnd BHM); Halla Sigurðardóttir (í stjórn Starfsmenntunarsjóðs BHM); Björn Snær Guðbrandsson (í stjórn Sjúkrasjóðs BHM). Skýrslu stjórnar BHM og önnur aðalfundargögn má finna á vefsíðu BHM.
Námskeið KVH fyrir námsmenn
KVH hélt námskeið í apríl fyrir þá félagsmenn sem hafa námsmannaaðild að KVH. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Silja Jóhannesdóttir, ráðgjafi og Karen Ósk Pétursdóttir, verkefnastjóri KVH. Á námskeiðinu var einkum fjallað um atvinnuviðtöl og undirbúning þeirra, gerð ferilskráa og ráðningasamninga.
Fundir KVH á Akureyri
KVH efndi til félagsfundar í byrjun apríl á Akureyri, en ríflega 80 félagsmenn eru búsettir þar. Á fundinum sem var fjölmennur og vel sóttur, var farið yfir stöðu kjarasamninga og viðræðna. Einnig hélt KVH kynningarfund með námsmönnum í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.
Tilraunaverkefni og tímabundin laun
Tilraunaverkefni um mat á árangri og frammistöðu, álagi og öðrum persónubundnum og tímabundnum þáttum er að fara af stað hjá 31 ríkisstofnun sem til þessa verkefnis voru valin, í framhaldi af bókun 2 með síðasta kjarasamningi við ríkið. Stofnanirnar skulu búa til matskerfi og/eða viðmið til að meta ofangreinda þætti til tímabundinna launa og fá til þess afmarkað fjármagn. Eiga þær að skila skýrslu um niðurstöðuna og framkvæmdina fyrir árslok 2015. KVH hefur sent félagsmönnum sínum á viðkomandi stofnunum sérstakt bréf vegna þessa um framkvæmdina.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur