Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Samningaviðræðum KVH við ríki frestað
Á fundi samninganefnda KVH og ríkisins í gær, 30. júní, var undirritað samkomulag um frestun kjaraviðræðna um sinn. Aðilar munu halda áfram viðræðum að fáeinum vikum liðnum og verða þær m.a. byggðar á þeim gögnum og kröfum sem báðir aðilar hafa lagt fram.
Sem kunnugt er hefur kjaradeila annarra aðildarfélaga BHM við ríkið siglt í strand með lagasetningu og mun Gerðardómur kveða upp úrskurð sinn, líklega í ágúst n.k. Þá hafa helstu aðildarfélög BSRB einnig frestað kjaraviðræðum við ríkið yfir hásumarið.
Kjarasamningaviðræður KVH við ríkið
Viðræður KVH um endurnýjun kjarasamnings við ríkið hafa nú staðið yfir í all langan tíma samfellt, en gildistími síðasta samnings var til 28. febrúar s.l. Ítarlega hefur verið rætt um megin atriði kröfugerðar, m.a. launaliði og gildistíma, stofnanasamninga og samkeppnishæfni ríkisstofnana um laun viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, hefur ríkið haldið sig við tillögur um sambærilega hækkun launaliða og samið var um fyrir skömmu við stóra hópa á almennum vinnumarkaði. Þá er vert að hafa í huga að samningaviðræður ríkisins við önnur aðildarfélög BHM og ýmsa aðra hópa háskólamanna hafa enn ekki borið árangur. Talsvert ber enn á milli aðila.
Síðasti samningafundur KVH og ríkis var í gær og hefur næsti fundur verið boðaður innan fárra daga.
Fyrsti maí 2015
BHM og aðildarfélög þess taka þátt í sameiginlegri 1.maí göngu stéttarfélaganna og eru félagsmenn hvattir til að taka þátt. Safnast verður saman við Borgartún 6, kl. 13:00 og gengið verður að Hlemmi, en þaðan fer stóra gangan af stað kl. 13:30. Útifundurinn sjálfur verður á Ingólfstorgi og hefst kl. 14:10.
Kjarasamningaviðræður KVH
Kjarasamningaviðræður KVH við ríkið standa nú yfir en félagsmenn KVH hjá ríkinu eru um 500 talsins. Gildistími síðasta samnings var til 28. febrúar sl. eins og samningar flestra annarra aðildarfélaga BHM. Upphaflega stóð KVH að sameiginlegri kröfugerð BHM og sameiginlegum viðræðum, en leiðir skildu þegar önnur aðildarfélög boðuðu til verkfallsaðgerða. KVH taldi boðun slíkra aðgerða ekki tímabæra og var félagsmönnum hjá ríkisstofnunum gerð nánari grein fyrir þeirri afstöðu.
Viðræður við ríkið hafa gengið hægt og á það einnig við um samningaviðræður á almennum vinnumarkaði. Mikið ber enn á milli hugmynda aðila um hækkun launaliða. Viðræður við aðra viðsemjendur, þ.e. fyrirtæki á almennum markaði, OR, Rarik, RUV og SFV eru ekki hafnar. Kjarasamningur KVH/BHM við SA er ótímabundinn og hefur viðræðum um hann verið frestað. Þá renna kjarasamningar KVH við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga út í haust.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur