Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Samningur við Reykjavíkurborg samþykktur
Samkomulag um breytingar og framlenginu kjarasamnings KVH og Reykjavíkurborgar, sem undirritað var 18. desember var samþykkt í rafrænni atkvæðagreiðslu sem lauk þriðudaginn 22. desember síðast liðinn. Alls 95,8% þeirra sem atkvæði greiddu, samþykktu samninginn. Hann gildir frá 1. september 2015 til 31. mars 2019.
Samið við Reykjavíkurborg
Í morgun, föstudaginn 18. des, var undirritað Samkomulag um breytingar og framlengingu kjarasamnings KVH og Reykjavíkurborgar. Samningurinn er í samræmi við aðra kjarasamninga sem gerðir hafa verið að undanförnu, og jafnframt í takt við samræmda launastefnu aðila vinnumarkaðarins, sem mótuð var í svokölluðum „Salek-viðræðum“. Gildistíminn er frá 1. september 2015 og til 31. mars 2019. Atkvæðagreiðsla um saminginn verður næstu daga.
Samningur KVH við SFV samþykktur
Nýgert samkomulag um breytingu og framlengingu kjarasamnings KVH og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), var kynnt viðkomandi félagsmönnum í dag og greidd atkvæði um samninginn. Samningurinn var samþykktur samhljóða. Hann gildir til 31. mars 2019.
Samningaviðræður við sveitarfélögin og RVK
Nú standa yfir kjarasamningaviðræður KVH við annars vegar Samband ísl. sveitarfélaga og hins vegar Reykjavíkurborg. Fundað var í síðustu viku og fundum er haldið áfram í þessari viku. Stefnt er að því að ná samningum fyrir vikulok.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur