Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Aðalfundur KVH
Aðalfundur KVH var haldinn 18.mars. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins, samþykkt reikninga og fjárhagsáætlunar, fór fram kosning í embætti. Í aðalstjórn til tveggja ára voru kosin Guðfinnur Þór Newman og Ragnheiður Ragnarsdóttir. Fyrir í aðalstjórn eru Birgir Guðjónsson, formaður, Ársæll Baldursson, gjaldkeri og Stefán Þór Björnsson, meðstjórnandi. Í varastjórn til eins árs voru kosin Helga S. Sigurðardóttir, Hjálmar Kjartansson og Sæmundur Árni Hermannsson.
Orlofssjóður BHM
KVH vill minna félagsmenn á að umsóknir til að sækja um orlofskosti fyrir tíambilið 10. júní – 19. ágúst 2016 verða að berast fyrir miðnætti þann 31. mars.
Jafnframt að hægt er að bóka tímabilin frá 3. til 10. júní og 19. til 26. ágúst 2016 frá og með 22. apríl kl. 9. Ekki þarf að sækja um þessi tímabil heldur gildir reglan fyrstur bókar fyrstur fær. Nýja húsið í Hálöndum þarf ekki að sækja um, það fer á vefinn 22. apríl kl. 9.
Sótt er um á bókunarvef OBHM – þar er einnig hægt að skrá sig á póstlista Orlofssjóðsins.
Aðalfundur KVH
Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn föstudaginn 18. mars 2016, kl. 12:00 – 14:00, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 3. hæð.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
- Reikningar félagsins
- Skýrslur og tillögur nefnda
- Tillögur félagsstjórnar
- Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
- Önnur mál
Samkvæmt lögum félagsins skulu með aðalfundarboði fylgja upplýsingar um tilnefningar/framboð til embætta félagsins. Á þessum aðalfundi skal kjósa tvo aðalmenn í stjórn til næstu tveggja ára. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara til þessara embætta: Guðfinnur Þór Newman, Helga S. Sigurðardóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Þá skulu kosnir þrír í varastjórn til eins árs. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara: Hjálmar Kjartansson og Sæmundur Árni Hermannsson.
Orlofssjóður BHM
Eftirfarandi íbúðir og sumarhús eru laus erlendis í sumar:
Til að sækja um þarf að fara inn á bókunarvefinn.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur