Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
Greiðsla úr Vísindasjóði KVH
Þeir sem aðild eiga að Vísindasjóði KVH eru félagsmenn sem starfa eftir kjarasamningum KVH og Sambands ísl. sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar. Aðild að Vísindasjóði KVH er valkvæð fyrir almenna vinnumarkaðinn og þeir félagsmenn sem samið hafa í ráðningarsamningi við vinnuveitanda um framlög í Vísindasjóðinn, eiga hér einnig hlut að máli.
Fræðsludagskrá BHM á vorönn 2018
Hér má nálgast fræðsludagskrá BHM á vorönn 2018.
Skráning fer að venju fram á vef BHM og verður opnað fyrir hana kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 30. janúar nk.
Staðan á vinnumarkaði
Staðan á vinnumarkaði
Nú standa yfir óformlegar viðræður stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins, þar á meðal BHM, um aukið samstarf til að stuðla að því að kjarasamningar skili raunverulegum ávinningi. Á sama tíma eru stærstu aðilar á vinnumarkaði að meta hvort forsendur kjarasamninga, sem gilda til ársloka 2018, hafi staðist. Auk þess eru 17 aðildarfélög BHM með lausa kjarasamninga við ríkið og nokkur fjöldi annarra stéttarfélaga eru einnig með lausa samninga við sína viðsemjendur.
KVH fylgist grannt með þessari stöðu og mögulegri framvindu. Engir kjarasamningar KVH eru lausir. Kjarasamningur KVH og SA er ótímabundinn, og kjarasamningar KVH við Ríki, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga gilda allir til 31.mars 2019.
Ný stefna BHM samþykkt
Á aukaaðalfundi BHM, sem haldinn var í gær, 1. nóvember 2017, var samþykkt ný stefna fyrir bandalagið og kemur hún í stað áður gildandi stefnu frá árinu 2013.
Aðdragandinn var sá að á aðalfundi BHM sl. vor náðist ekki að afgreiða tillögur að nýrri stefnu bandalagsins sem lágu fyrir fundinum. Var málinu vísað til formannaráðs BHM sem skipaði fimm manna starfshóp til að vinna málið áfram og skilaði hann af sér tillögu að nýrri stefnu bandalagsins.
Tillaga starfshópsins var samþykkt á aukaaðalfundinum með tveimur orðalagsbreytingum.
Helstu kaflar nýrrar stefnu fjalla um launa- og kjaramál, lífeyrismál, menntamál, málefni stúdenta og LÍN, jafnréttismál og fjölskylduvænan vinnustað, og vinnumarkað framtíðar. (Sjá stefnuna hér: https://www.bhm.is/um-bhm/stefna )
Starfshópurinn skilaði einnig greinargerð með tillögunni að nýrri stefnu, þar sem gerð er grein fyrir forsendum og viðhorfum starfshópsins. Þá leggur starfshópurinn til að BHM skoði hvort ekki sé rétt að taka til viðbótar inn í stefnumörkun bandalagsins þætti sem varða almenn lífskjör og velferð. (Sjá greinargerð starfshópsins hér: https://www.bhm.is/media/adalfundir_bhm_safn/Greinargerd-starfshops-um-stefnu-BHM.pdf )
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur