Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: kvh@bhm.is
Efst á baugi
18 námskeið frá Tækninám komin á vef BHM
Nú eru alls átján námskeið frá Tækninám komin inn á vefinn Fræðsla fyrir félagsmenn, hér að neðan er listi yfir öll námskeiðin sem nú eru aðgengileg. Væntanleg á vefinn á næstunni eru tólf námskeið til viðbótar.
Vinsamlegast athugið að innskráningin á Fræðsla fyrir félagsmenn er ekki tengd Mínum síðum, því þurfa félagsmenn að nýskrá sig hér, hafi þeir ekki stofnað aðgang áður.
- Delve í hnotskurn
Delve er hluti af Office 365 pakkanum og getur hjálpað okkur að halda utan um og finna auðveldlega skjölin okkar í skýinu. - Excel í hnotskurn
Grunnnámskeið í Excel þar sem farið er yfir fjölbreytta notkunarmöguleika forritsins. - Excel Online
Excel Online er ekki eins og Excel forritið sem þú notar í tölvunni. Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig Excel Online virkar og hver munurinn er. - Excel Pivot töflur
Framhaldsnámskeið í Excel þar sem gert ráð fyrir að fólk hafi ágætis þekkingu á forritinu. - Fjarvinna í Microsoft Office 365
Hvernig á að nota Teams, búa til teymi, nota spjallrás, funda, deila skjölum, nýta OneDrive og vinna með skjöl í skýinu. - Flow kynning
Sýnt er hvernig hægt er að búa til einföld flæði (flow) sem geta nýst í vinnunni. - Jira Administration
Í Jira þjónustukerfinu er hægt að halda utan um beiðnir um þjónustu, tilkynningar og verkefni, samninga, reikninga, tengiliði, búnað í rekstri o.fl. - Jira Service Management – Project settings
Á þessu námskeiði er farið yfir allar Project stillingar fyrir Jira Service Management Projects (JSM). Til að komast í allar þessar stillingar þarf Jira administrator réttindi. - Microsoft Sharepoint í hnotskurn
Hér er farið í helstu atriðin sem notendur Sharepoint þurfa að kunna. - Microsoft Teams í hnotskurn
Grunnnámskeið í notkun Teams forritsins, á því er m.a. farið yfir hvernig á að búa til teymi, halda fundi, deila skjölum, spjalla og margt fleira. - Microsoft To Do
Hér fræðumst við um Microsoft To Do og hvernig það talar við forrit eins og Outlook og Planner. Við lærum að gera lista, verk og undirverk og ýmsar gagnlegar stillingar. - Microsoft Whiteboard í hnotskurn
Whiteboard er vanmetið en afar sniðugt tól til samvinnu, sérstaklega þegar kemur að hugmyndavinnu og þegar þarf að setja verkefni upp á sjónrænan hátt. Á þessu stutta námskeiði eru möguleikar forritsins skoðaðir. - Office 365 grunnámskeið
Grunnkennsla á helstu forrit Office 365 pakkans og hvernig hægt er að nýta þau. - Náðu stjórn á vinnudeginum með Outlook
Ekki láta Outlook stjórna þér, þú átt að stjórna Outlook. Á þessu námskeiði lærum við að nota Outlook sem tímastjórnunartæki. - One Drive for Business
Hver er tilgangur og grunnvirkni OneDrive? Hver er munurinn á OneDrive Personal og OneDrive for Business? Á námskeiðinu er m.a. farið yfir þessi atriði. - Power Point í hnotskurn
Farið er yfir helstu eiginleika PowerPoint og hvernig er hægt að setja upp áhrifaríka kynningu. - Stream
Stream er myndbanda lausn Office 365. Á námskeiðinu eru helstu eiginleikar Stream skoðaðir. Við lærum að búa til hópa og rásir og um leið að aðgangsstýra myndböndunum. - Öryggisvitund
Það finnast margar hættur á netinu og margt ber að varast. En sem betur fer er ýmislegt sem við getum gert til þess að tryggja öryggi okkar og lært að forðast hætturnar.
Stofnanasamningur undirritaður við Ferðamálastofu
Þann 15. janúar 2021 var undirritaður stofnanasamningur milli KVH og Ferðamálastofu. Stofnanasamningurinn tók gildi 1.1.2020 og má finna samninginn á vefsvæði félagsins undir stofnanasamningar en tengill á samninginn má finna hér.
KVH vill þakka samningsaðilum fyrir samstarfið.
BHM semur við Tækninám.is – félagsmönnum aðildarfélaga BHM bjóðast yfir 30 rafræn námskeið út árið 2021
Það er óhætt að segja að mikil umbylting hafi átt sér stað í notkun stafrænnar tækni á síðasta ári. Vegna Covid-19 þurftu margir félagsmenn aðildarfélaga BHM að aðlagast hratt að breyttum vinnuaðstæðum. Margir hafa þurft að læra á eitt eða fleiri fjarfundakerfi, á ný verkefnastjórnunarforrit, læra um stafrænt öryggi við heimavinnu og svo mætti lengi telja.
Nú eru flestir sammála um að fjarvinna sé komin til að vera að einhverju leyti, en það tekur tíma að venjast og læra til fulls á nýja tækni.
Það er því mikið gleðiefni að BHM gerði samning í desember síðastliðnum við fræðslufyrirtækið Tækninám.is um aðgang að öllu þeirra námsefni fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM út árið 2021.
Um er að ræða yfir 30 námskeið sem snúa flest að tæknilegum málum eða hvernig hægt er að nýta tæknina við verkefnastjórnun, samstarf og fleira.
Það er von okkar hjá BHM að félagsmenn nýti sér þessi námskeið og styrki sig um leið á vinnumarkaði. Nú stendur yfir vinna við að setja upp öll námskeiðin lokaðri fræðslusíðu BHM hér: Fræðsla fyrir félagsmenn.
Vinsamlegast athugið að innskráningin er ekki tengd Mínum síðum, því þurfa félagsmenn að nýskrá sig hér, hafi þeir ekki stofnað aðgang áður.
Eftirfarandi námskeið eru nú aðgengileg á síðunni:
- Excel í hnotskurn
Grunnnámskeið í Excel þar sem farið er yfir fjölbreytta notkunarmöguleika forritsins. - Excel Online
Excel Online er ekki eins og Excel forritið sem þú notar í tölvunni. Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig Excel Online virkar og hver munurinn er. - Excel Pivot töflur
Námskeið í notkun Pivot taflna í Excel. Þetta er framhaldsnámskeið og gert ráð fyrir að fólk hafi ágætis þekkingu á Excel. - Fjarvinna með Microsoft Office 365
Grunnkennsla á helstu forrit Office 365 pakkans. - Teams í hnotskurn
Grunnnámskeið í notkun Teams forritsins, á því er m.a. farið yfir hvernig á að búa til teymi, halda fundi, deila skjölum, spjalla og margt fleira.
Á næstu dögum og vikum munu svo bætast við fleiri námskeið, m.a. um öryggisvitund, Word, PowerPoint, WorkPlace á Facebook, Yammer, Sway, Jira, verkefnastjórnun í SharePoint og fleira.
Sjálfsmatspróf í stafrænni hæfni
Þess má geta að Evrópuþingið hefur útnefnd stafræna hæfni sem eitt af átta mikilvægustu þáttum símenntunar fólks á vinnumarkaði nú og til framtíðar. Ef þú vilt vita hvar þú stendur geturðu smellt hér til að taka sjálfsmatspróf í stafrænni hæfni á íslensku, sem unnið var út frá viðmiðum Evrópuþingsins.
Stafræna hæfnihjólið var búið til af Center for digital dannelse og er fjármagnað af DIGCOMP, rannsóknarverkefni hjá Evrópusambandinu, sem sett var á fót í kjölfar þess að Evrópuþingið útnefndi stafræna hæfni sem eitt af átta kjarnahæfnisviðum símenntunar. VR tók að sér að að láta þýða og staðfæra stafræna hæfnihjólið fyrir íslenskan vinnumarkað.
Sala á ferðaávísunum er hafin inn á orlofsvef OBHM
- Fram til þessa hefur sjóðfélögum staðið til boða að kaupa hótelmiða sem gefnir eru út af hótelum og gistiheimilum. Þetta heyrir nú sögunni til því ferðaávísunin er rafræn og hægt er að kaupa hana í gegnum orlofsvef OBHM.
- Sjóðfélagi ræður fyrir hversu háa upphæð hann kaupir en ferðaávísunin mun gilda á yfir 50 íslenskum hótelum og gistiheimilum. Til að innleysa ávísunina þarf sjóðfélagi einungis að mæta á hótelið þar sem hann hyggst nýta ferðaávísunina og gefa upp kennitölu sína.
- Ef handhafi ferðaávísunar vill breyta ferðaáformum sínum, eða ef hótelið er fullbókað þá nótt sem hann hyggst gista, getur hann fyrirhafnarlaust notað ávísunina hjá öðru hóteli.
- Sjóðfélagar munu geta skoðað þau tilboð sem hótel og gistiheimili gera þeim hverju sinni á orlofsvef BHM.
- Hægt verður að nota ferðaávísunina til þess að greiða fyrir alla þjónustu á hóteli.
- Orlofssjóður BHM gerir þá kröfu til hótelanna að betri tilboð fyrir sömu vöru sé ekki að finna annars staðar og að hótelin bjóði sjóðfélögum sín bestu kjör.
Niðurgreiðsla
- Orlofssjóður BHM niðurgreiðir ferðaávísanir um 35% eða að hámarki 7.000 kr. á almanaksári.
- Þannig er niðurgreiðsla af 20.000 kr. ferðaávísun 7.000 kr. en hægt er að kaupa ferðaávísanir fyrir hærri upphæðir án þess að niðurgreiðslu njóti við.
- Eins er hægt að kaupa ferðaávísanir fyrir lægri fjárhæðir og í mörgum atrennum en 35% niðurgreiðsla reiknast þá á hver kaup þar til 7.000 kr. hámarki er náð.
Punktafrádráttur
- Greiddur er 1 punktur fyrir hverjar 1.000 kr. af niðurgreiðslu.
Á árinu 2021 verða niðurgreiddar ferðaávísanir seldar í takmörkuðu upplagi. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að óháð því hvort ferðaávísun er niðurgreidd eða ekki þá er um að ræða inneign á hótelum á mjög góðum kjörum.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur