Tvískipt yfirvinna tekur gildi 1. janúar 2021 hjá öllum stéttarfélögum sem sömdu þar um. Frá sama tíma mun eftirfarandi ákvæði gilda um yfirvinnu 1 og 2:
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2. Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum en tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum.
Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
Yfirvinna 1Kl. 08.00 – 17.00 mánudaga – föstudaga.
Yfirvinna 2Kl. 17.00 – 08.00 mánudaga – föstudaga.
Yfirvinna 2Kl. 00.00 – 24.00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga.
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 40 stundir á viku (173,33 stundir miðað við meðalmánuð).
Þá hefur sömuleiðis verið ákveðið að föst yfirvinna sem er merkt sem slík í launakerfinu verði greidd sem yfirvinna 2 (1,0385%).