Kæra félagsfólk

Samninganefnd KVH á, líkt og síðastliðnar vikur og mánuði, í samningaviðræðum við viðsemjendur sína, Ríkið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Á þessum tímapunkti er enn unnið að gerð nýs kjarasamnings. Samningafundir eru í hverri viku og við vonumst til að samningar náist sem fyrst.

Þegar samningar nást verða þeir kynntir félagsfólki og svo bornir undir atkvæðagreiðslu.

Við viljum þakka ykkur fyrir stuðninginn og minnum á að öll framvinda viðræðna verður birt jafnóðum á heimasíðu félagsins og/eða í tölvupósti.

Með kærri kveðju,
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga

Share This