BHM skipuleggur og stendur fyrir sérstökum námskeiðum fyrir trúnaðarmenn aðildarfélaga. Venjulega er grunnnámskeið fyrir trúnaðarmenn verið haldið á haustönn og framhaldsnámskeið á vorönn. Að þessu sinni verður grunnnámskeiðið haldið þriðjudaginn 5. nóvember næstkomandi. Leiðbeinandi er Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga. Vinsamlegast athugið að skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM (smellið hér).
Grunnnámskeið I fyrir trúnaðarmenn
Tími:
5. nóvember, 9:00‒12:00
Staðsetning:
Borgartún 6 í Reykjavík (4. hæð)
Umsjón/leiðbeinandi:
Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN)
Lýsing:
Fjallað verður um:
· Lagalega stöðu trúnaðarmanna
· Kosningu og vernd trúnaðarmanna
· Hlutverk trúnaðarmanna
· Réttindi og skyldur trúnaðarmanna
· Innihald ráðningarsamninga
· Hvar trúnaðarmenn finna upplýsingar
· Kjarasamninga og stofnanasamninga
· Tímabundnar ráðningar og auglýsingaskyldu
Skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM (smellið hér).
Námskeiðinu verður streymt á streymissíðu BHM.
Ath. að ekki þarf að skrá þátttöku til að geta fylgst með streyminu.