KVH auk fimmtán annarra aðildarfélaga BHM undirrituðu þ. 28. maí samkomulag við fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, um breytingar og framlengingu á kjarasamningum aðila. Samningurinn er á svipuðum nótum og samningar á almennum vinnumarkaði og nær út febrúar 2015, en er afturvikur frá 1. febrúar 2014. Samkomulagið verður kynnt hlutaðeigandi félagsmönnum KVH á næstu dögum og verða þeim sendar nánari upplýsingar. Atkvæðagreiðsla verður rafræn.