Nú er hægt að senda inn umsókn um leigu á orlofshúsum eða íbúðum í útlöndum í sumar.
Til að sækja um þarf að fara inn á bókunarvefinn. Umsóknarformið er undir „umsóknir“, og velja svo „sækja um“. Hægt er að breyta umsókninni á meðan umsóknarfrestur er ekki liðinn. Það skiptir ekki máli hvenær á umsóknarfrestinum umsóknin kemur inn svo framarlega sem hún kemur inn í síðasta lagi á lokadeginum. Úthlutun fer eftir punktakerfi þar sem kerfið skoðar hverja umsókn fyrir sig. Ef margir sækja um á sama stað á sama tíma fær sá úthlutun sem á flesta punkta. Punktasöfnun fer þannig fram að hver greiðslumánuður í sjóðinn gefur 4 punkta, árið gefur því 48 punkta.
Umsóknarfrestur rennur út sem hér segir:
Útlönd á miðnætti — 15. febrúar 2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 16. febrúar.
Páskar á miðnætti* — 29. febrúar 2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 27. febrúar.
Sumarið innanlands 2016* — 31. mars 2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 1. apríl.
*ATH rafræna umsóknarformið fyrir sumarhúsin um páska og innanlands er einnig komið inn á vefinn
KVH vill minna á að Orlofssjóður BHM er á facebook, þangað eru settar auglýsingar um sumarhús sem losna með stuttum fyrirvara. Einnig er hægt að skrá sig á póstlista á Bókunarvef sjóðsins.