Atkvæðagreiðslu um breytingar og framlengingu kjarasamnings KVH og Reykjavíkurborgar, sem undirritaður var 16. apríl s.l. lauk í dag. Niðurstaðan varð þessi: Alls greiddu atkvæði 85% þeirra sem á kjörskrá voru. Já sögðu 76,1%. Nei sögðu 17,4 %. Auð atkvæði voru 6,5%. Samningurinn telst því samþykktur.