Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga var haldinn 25. mars sl. Í fyrsta skipti í sögu félagsins var fundurinn haldinn rafrænn, en það er ánægjulegt að greina frá því að 85 félagsmenn KVH tóku þátt í fundinum. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins, samþykkt reikninga og fjárhagsáætlunar, fór fram kosning í embætti.
Eftirfarandi skipa nýja stjórn KVH:
- Stefán Þór Björnsson, formaður
- Ásta Leonhardsdóttir, varaformaður/ritari
- Helga S. Sigurðardóttir, gjaldkeri
- Guðjón Hlynur Guðmundsson, meðstjórnandi
- Heiðrún Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Varastjórn skipa:
- Björn Bjarnason
- Irina S. Ogurtsova
- Karl Einarsson