Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn fimmtudaginn 23. mars 2017, kl. 12:00 – 13:30, í aðalfundarsal BHM að Borgartúni 6, 3. hæð.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
- Reikningar félagsins
- Skýrslur og tillögur nefnda
- Tillögur félagsstjórnar
- Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
- Önnur mál
Kosningar: Á þessum aðalfundi skal skv. lögum félagsins kjósa formann og tvo aðra aðalmenn, þ.e. gjaldkera og einn meðstjórnanda. Að auki skal kjósa þrjá varamenn í stjórn og tvo skoðunarmenn reikninga. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara til þessara embætta:
- Til formanns: Birgir Guðjónsson.
- Til gjaldkera: Ársæll Baldursson.
- Til eins sætis meðstjórnanda: Einar Geir Jónsson og Stefán Þór Björnsson.
- Til aðalmanns: Helga S. Sigurðardóttir
- Til varastjórnar: Hjálmar Kjartansson og Sæmundur Árni Hermannsson.
- Til skoðunarmanna reikninga: Halla S. Sigurðardóttir og Jóngeir Hlinason.
Lagabreytingar: Stjórn KVH leggur fram eftirtaldar tillögur til lagabreytinga:
- Að í annarri málsgrein 9.gr laga um aðalfund, þar sem fjallað er um hvaða mál skuli tekin til meðferðar á aðalfundi og nánar hvernig haga skuli kosningu til embætta, þar standi:
„Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf:
- Kosning formanns annað hvert ár
- Kosning ritara til 2ja ára
- Kosning gjaldkera til 2ja ára
- Kosning meðstjórnanda til 2ja ára
- Kosning 3ja varamanna til eins árs
- Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga til 2ja ára“
2. Að fjórða málsgrein 9.gr. laga um aðalfund verði þannig:
“Framboð/tilnefning til embætta á aðalfundi skulu tilkynnt stjórn fyrir 1. mars næstan á undan aðalfundardegi. Tilkynningu skal fylgja staðfesting þess sem býður sig fram / er tilnefndur á því að hann gefi kost á sér til embættisins. Einungis er hægt að bjóða sig fram til eins embættis stjórnarmanns á aðalfundi. Kosningar til trúnaðarstarfa og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar skulu vera leynilegar. Einungis þeir félagsmenn sem mæta á fundinn hafa atkvæðisrétt.”