Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga var haldinn 23. mars sl. Jóngeir Hlinason var kosinn fundarstjóri og Björn Bjarnason var kosinn ritari.
Dagskrá fundarins var:
- Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
- Reikningar félagsins
- Tillögur félagsstjórnar
- Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
- Önnur mál
Aðalfundur samþykkti að félagsgjöld skyldu vera óbreytt 0,6% af heildarlaunum. Sigríður Svavarsdóttir var kosin í embætti ritara og Ingólfur Sveinsson í embætti meðstjórnanda. Stjórn KVH fram að næsta aðalfundi er því skipuð á eftirfarandi hátt:
- Stefán Þór Björnsson, formaður
- Helga S. Sigurðardóttir, gjaldkeri
- Sigríður Svavarsdóttir, ritari
- Guðjón Hlynur Guðmundsson, meðstjórnandi
- Ingólfur Sveinsson, meðstjórnandi