Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) verður haldinn miðvikudaginn 3 . júní 2020, kl. 12:00 – 13:30, í fundarsölum BHM að Borgartúni 6, 4. hæð.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
Reikningar félagsins
Tillögur félagsstjórnar
Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
Lagabreytingar
Ákvörðun félagsgjalda
Fjárhagsáætlun og fjárfestingastefna félagsins
Önnur mál
Kosningar: Á þessum aðalfundi skal skv. lögum félagsins kjósa ritara og meðstjórnanda. Að auki skal kjósa þrjá varamenn í stjórn og tvo skoðunarmenn reikninga. Eftirtaldir hafa gefið kost á sér með lögmætum fyrirvara til þessara embætta:
Til ritara: Sæmundur Hermannsson. Sjálfkjörinn.
Til meðstjórnanda: Ásta Leonhardsdóttir. Sjálfkjörin.
Til varastjórnar: Björn Bjarnason, Irina S. Ogurtsova og Tjörvi Guðjónsson. Sjálfkjörin.
Til skoðunarmanna reikninga: Halla S. Sigurðardóttir og Jóngeir Hlinason. Sjálfkjörin
Lagabreytingar: Stjórn KVH leggur fram eftirtaldar tillögur til lagabreytinga:
- Að í fyrstu málsgrein 10.gr laga um aðalfund, þar sem fjallað er um stjórnarkjör og lengd kjörtímabils, þar standi:
„Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og þremur til vara. Stjórn er kjörin á aðalfundi félagsins. Kjörtímabil formanns skal vera fjögur ár og kjörtímabil aðalmanna skal vera tvö ár í senn. Kjörtímabil varamanna í stjórn skal vera eitt ár í senn. Leitast skal við að hlutfall karla eða kvenna samanlagt í stjórn og varastjórn félagsins nái 40%.“
Að önnur málsgrein 10.gr. laga um stjórnarkjör verði þannig:
„Kjöri aðalmanna í stjórn félagsins skal haga þannig að aldrei sé skipt um alla stjórnarmenn í einu. Þannig skal kjósa til embættis gjaldkera og eins meðstjórnanda á sama aðalfundi og svo til embættis ritara og eins meðstjórnanda á þeim næsta. “
- Tillaga Helgu Sigurðardóttur um breytingar á 10. grein laga um aðalfund. Tíunda grein breytist og verði í heild sinni þannig:
„Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum og þremur til vara. Stjórn er kjörin á aðalfundi félagsins. Kjörtímabil aðalmanna skal vera tvö ár í senn. Kjörtímabil varamanna í stjórn skal vera eitt ár í senn.
Stjórn KVH skal skipa þannig að hlutfall karla og kvenna endurspegli hlutfallið 60% þ.e. þrír stjórnarmenn og 40% hlutfall kvenna/karla þ.e. tveir stjórnarmenn. Kynjaskiptingar hlutfall ræðst af því hvort kynið fær flest atkvæði við kosningu í embætti og tekið skal mið af því hvernig embætti í stjórn eru skipuð sem ekki eru í framboði á aðalfundi. Sömu kynjahlutföll skulu gilda um varastjórn. Ef framboð karla og kvenna gefur ekki kost á tilgreindum kynjahlutföllum þá skal ráða flest atkvæði við kosningu til embætta stjórnar KVH óháð kyni.
Kjöri aðalmanna í stjórn félagsins skal haga þannig að aldrei sé skipt um alla stjórnarmenn í einu. Þannig skal kjósa til embættis formanns, gjaldkera og eins meðstjórnanda á sama aðalfundi og svo til embættis ritara og eins meðstjórnanda á þeim næsta. Kjósa skal um hvert embætti fyrir sig.
Kosning skal fara fram þannig að stjórn KVH endurspegli 60% og 40% kynjaskiptingu karla og kvenna og skal framkvæmd fléttukosning í embætti til stjórnar. Sá frambjóðandi sem flest atkvæði fær skipar embætti í stjórn KVH og næsta sæti í embætti skipar sá sem flest atkvæði fékk af hinu kyninu svo framarlega sem framboð beggja kynja til stjórnar styður slíka framkvæmd. Sé fyrir kynjahalli í stjórn þá fær það kyn sem hallar á og flest atkvæði fær kosningu í það embætti sem frambjóðandi gaf kost á sér til.
Ritari gegnir formannsstarfi ef með þarf.
Formaður kveður varamenn til stjórnarfunda ef þurfa þykir.
Stjórn félagsins skipar fulltrúa á aðalfund Bandalags háskólamanna. Formaður situr í formannaráði BHM í samræmi við gildandi lög þess. Stjórn tilnefnir fulltrúa félagsins í nefndir og ráð BHM og til annarra trúnaðarstarfa eftir atvikum. Hámarkstími sem stjórnarmaður getur setið í stjórn getur ekki orðið lengri en 12 ár og formaður stjórnar skal ekki sitja lengur en 15 ár í stjórn félagsins.“