BHM býður félagsmönnum aðildarfélaga að sækja námskeið 19. mars um leiðir til að stjórna streitu og nýta hana til árangurs, forðast kulnun og „blómstra“ í starfi. Námskeiðið fer fram í Ási, fundarsal BHM á 4. hæð í Borgartúni 6, milli kl. 9:00 og 12:30.
Námskeiðið er félagsmönnum að endurgjaldslausu en skrá þarf þátttöku fyrirfram hér. Vinsamlegast athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því gildir reglan ,,fyrst koma, fyrst fá“.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Ragnheiður Aradóttir. Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvað kulnun er og hvað hún er ekki
- Leiðir til að forðast kulnun
- Hvernig stjórna má streitu og nýta hana til árangurs
- Hvað átt er við með hugtakinu „að blómstra“ úr jákvæðu sálfræðinni
- Hvers vegna er „lífsnauðsynlegt“ að huga að og rækta eigin velferð og hvaða leiðir eru færar til þess
- Hvernig eigi að skilja eigin ábyrgð og læra að taka stjórn á aðstæðum
- Hvernig eigi að snúa ósigrum í sigra og „blómstra“ í starfi
- Leiðir til að ná árangri í starfi