KVH og 13 önnur aðildarfélög BHM undirrituðu í gær, 23. október, nýjan ótímabundinn kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn byggir á fyrri kjarasamningi aðila, frá árinu 2011.
Kjarasamningur aðildarfélaga BHM og SA er ólíkur ýmsum öðrum kjarasamningum að því leyti að í honum er ekki samið um laun fyrir einstök störf eða starfsmenn. Launakjör eru hins vegar ákvörðuð í ráðningarsamningi milli vinnuveitanda og viðkomandi háskólamanns, og getur starfsmaður óskað árlega eftir viðtali við sinn yfirmann um breytingar á starfskjörum. Sérstakur skýringarrammi var settur í samninginn um þessi árlegu launaviðtöl.
Meðal helstu breytinga sem nýi kjarasamningurinn felur í sér er að staðfest er áður gert samkomulag aðila um aukið framlag vinnuveitanda í lífeyrissjóði, en framlagið hækkaði í 10% 1. júlí síðast liðinn og í 11,5% frá 1. júlí 2018. Þá er vinnuveitanda skylt að greiða framlag í Starfsmenntunarsjóð BHM, en það var áður valkvætt. Ný heimildarákvæði voru sett í samninginn, er kveða á um að valkvætt sé að greiða í Vísindasjóð viðkomandi stéttarfélags og í Starfsþróunarsetur háskólamanna.
Nýtt ákvæði var tekið inn um staðgengla, og breytt eða aukin margvísleg ákvæði í ýmsum köflum samningsins, svo sem um uppsagnarfrest á reynslutíma, breytingar á vaktavinnukafla, veikindakafla, fræðslumálum og fleiru. Þá var lögð áhersla á mikilvægi þess að vinnuveitandi og starfsmaður geri með sér skriflegan ráðningarsamning í upphafi ráðningar.
KVH mun senda félagsmönnum sínum sem aðild eiga að þessum kjarasamningi, nánari upplýsingar um samninginn, en auk þess er hann birtur hér á vefsíðu KVH.