Enn standa yfir viðræður KVH og samninganefndar Sambands ísl. sveitarfélaga (SNS). Gangur viðræðna hefur verið ágætur síðustu daga og fá efnisatriði sem útaf standa. Því má ætla að styttast fari í niðurstöðu sem hægt verði að bera undir atkvæði félagsmanna. KVH mun kynna það um leið og samkomulag verður í höfn.