Sjóðfélagar í Styrktarsjóði eða Sjúkrasjóði BHM athugið!
Umsóknir og gögn sem miðast við almanaksárið 2015 þurfa að berast rafrænt í síðasta lagi 9. desember næstkomandi. Sama gildir um gögn vegna umsókna sem þegar hafa borist.
Umsóknir eru sendar inn með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður BHM – þar má einnig sjá stöðu umsókna ef þið eruð í vafa um hvort þið hafið fengið greitt.
Nálgast má úthlutunarreglur á heimasvæði sjóðanna.
Styrkumsóknir eru afgreiddar í hverjum mánuði. Umsóknir og fullnægjandi gögn sem berast í síðasta lagi 9. eru greiddar út 24.-26. dag sama mánaðar.
Nánari upplýsingar gefa fulltrúar sjóðanna:
Ingunn Þorsteinsdóttir vegna Styrktarsjóðs (opinberir starfsmenn): Sími 595-5111
Benóný Harðarson vegna Sjúkrasjóðs (starfsmenn á almennum markaði): Sími 595-5120